28.01.2007 01:13:59 / elena

Orðin mamma og prinsinn heitir Aðalsteinn Einir

Jæja tæpir þrír mánuðir frá því ég bloggaði síðast. En það er brjálað að gera í halda uppi síðu fyrir Aðalstein Eini á barnalandi þannig að bloggið hefur sitið á hakanum. En það sem hefur gerst frá því ég bloggaði síðast er að ég fæddi lítinn dreng 15 dögum fyrir tímann 21. nóvember 2006 og var verið að skíra hann síðustu helgi. Hann var skírður í höfuðið á báðum öfum sínum og líka Eini frænda sínum, Já já hann heitir Aðalsteinn Einir. Við vorum að koma frá eyjum í dag þar sem við heimsóttum ömmu og afa í eyjum og var alveg dekrað við okkur. En ég vona að ég fari að vera duglegri að blogga en ég lofa engu. Kveðja Elena mamma

» 4 hafa sagt sína skoðun

07.11.2006 12:38:38 / elena

Loksins loksins

Loksins kemur ein bloggfærsla frá mér, hef verið allt of löt undanfarið. En það er bara mánuður í settan dag og er ég komin með rosa bumbu, hvernig verð ég eiginlega eftir mánuð eða 6 vikur ef ég fer að fara fram yfir settan tíma. Ég er enn að vinna á fullu og heilsan er mjög góð sem betur fer. Þórir verður spenntari og spenntari með degi hverjum og ég auðvitað líka. Ég er búin að búa til síðu handa litla bumbukrílinu og er slóðin á hana: http://www.barnaland.is/barn/48192 Ef þið viljið fá aðgang þá sendið þið mér bara línu. Hef meira undanfarið verið að brasa í þessari síðu þannig að bloggið hefir sitið á hakanum. En segi þetta nóg í bili . Bumbulena 8)

» 4 hafa sagt sína skoðun

16.09.2006 19:43:53 / elena

ÍBV fallið í 1. deild :(

Hvað er í gangi í eyjum í þessum fótboltamálum, er fótboltinn virkilega á niðurleið í eyjum. Vestmannaeyjingar eiga hvorki karla né kvennalið á meðal þeirra bestu. Það hefði nú áttað hugsa málið aðeins betur þegar ákveðið var að legga niður kvennaliðið. Það er bara eins gott að ÍBV sendi kvennalið í 1. deilidina á næsta ári og fari að hífa upp um sig brækurnar bæði í kvenna- og karlaboltanum. Ja hérna, aldrei hélt ég að þessi staða ætti eftir að koma upp í eyjum en allt getur greinilega gerst á stuttum tíma. Elena:(


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.08.2006 00:00:58 / elena

Áfram Magni

Áfram Magni. Þátturinn er að byrja eins gott að hann verði ekki einn af þremur neðstu. Elena 8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.08.2006 11:28:52 / elena

28 ára í dag Vááááá

Ég á afmæli í dag. Ligga ligga lái. En vá ég er orðin 28 ára og geri aðrir betur. Elena 8)


» 9 hafa sagt sína skoðun

10.08.2006 23:00:34 / elena

Þjóðhátíðin búin og sumarfríið að klárast

Þjóðhátíðin bara búin og það er allt önnur tilfinning núna en áður. Enda var maður bara edrú á þjóðhátíðinni og lítið í dalnum. Ég var líka að vinna eins og brjálæðingur eins og venjulega, ég tími ekki að sleppa peningnum sem fæst fyrir vinnu á þjóðhátíð. Allt of mikið í húfi. Ég er enn í eyjum og vinnan byrjar á þriðjudag. Þórir byrjar að vinna aftur á mánudag þannig að við skellum okkur í Herjólf á sunnudag og brunum svo í bæinn. Rosalega er samt búið að vera næs að vera hérna í eyjum á Hótel mömmu en það verður nú líka gott að koma heim. Jæja nenni ekki að skrifa meira. Elena 8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.07.2006 15:27:33 / elena

4 dagar í þjóðhátíð

Ég er komin  aftur til Vestmannaeyja og hef það bara rosalega gott eins og alltaf þegar ég er komin á hótel mömmu. Ég er búin að vera reyna skilja eitthvað í þessu launaforriti sem pabbi var að kaupa en held það endi með því að ég þurfi að fara í smá kennslu hjá henni Jónu. Þórir, Einir bro og Ingólfur bro eru í golfi núna þannig að það er svo sem ekkert annað að gera enn að sökkva sér í þetta launaforrit.

Þegar ég var í bænum þá keyptum við Þórir borðstofuborð og stóla. Borðstofuborðið er komið heim en stólarnir koma ekki fyrr en eftir 5-9 vikur. Biðin er þess virði þar sem við fáum stóla alveg nákvæmlega eins og við viljum.

Jæja læt vonanadi heyra í mér aftur fyrir þjóðhátíð en ég lofa engu enda brjálað að gera og svo verð ég að vinna eins og brjálæðingur á þjóðhátíðinni. Elena 8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.07.2006 14:36:51 / elena

Er að fara yfirgefa paradísareyjuna loksins þegar það er komið gott veður :(

Ég er að fara í bæinn í dag með flugi kl. hálfsex þar sem ég er að fara í 20 vikna sónar á morgun. Já hlakka mikið til að sjá hvað barnið hefur stækkað, bumban hefur allavega stækkað svolítið. Síðan fer Þórir í frí eftir þessa viku og ætlum við að dúlla okkur eitthvað þá, vitum ekkert hvað við gerum. Allavega vil ég ef við förum ekki til útlanda kaupa okkur þá borðstofuborð og stóla í staðinn :) Þórir er eiginlega búinn að samþykkja það. Ég er á leiðinni í sund með mömmu þannig að ég læt þetta vera gott í bili. Elena 8)

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.07.2006 23:15:21 / elena

Ítalir heimsmeistarar :)

Þessi helgi var nú aldeilis skemmtileg. Ég kom í bæinn á föstudag með Herjólfi og var svo að versla með mömmu allan föstudaginn. Á laugardag var þetta líka snilldar brúðkaup hjá Tómasi Inga og Helgu. Vá hvað þetta var flott brúðkaup og það var algjört stuð í veislunni. Við Þórir sváfum svo í bústað á Flúðum með fjölskyldunni og brunuðum svo í bæinn á sunnudeginum til að kaupa kommóðu í IKEA og náðum við síðustu kommóðunni. Þetta er alveg ótrúlegt, pantaði þessa kommóðu fyrir meira en mánúði, svo er hringt í mann á sunnudegi og sagt að hún sé komin og maður verði að koma helst STRAX til að ná einu stykki áður en hún selst upp aftur. ÓTRÚLEGT. Svo var það Úrslitaleikurinn á HM og það voru mínir menn sem fóru með sigur af hólmi. JIBBÝ. Áfram Ítalía ole ole ole ole :D En svona í framhaldinu af því, hvað var Zidane að pæla, mér er alveg sama hvað var sagt við hann, það gerir enginn svona lagað. ÞVÍLÍKT RUGL. En það verður fróðlegt að sjá viðtalið sem tekið verður við Zidane á næstu dögum.

Í dag var ég svo á flakki hingað og þangað um bæinn að skoða hitt og þetta og það endaði með því að ég keypti baðborð með kommóðu. Hún er hvít og alveg rosalega flott ;) Og svo er ég bara að fara til eyja á morgun og verð þar í viku að vinna og auðvitað slaka ég líka eitthvað á. Þórir ætlar að koma til eyja næstu helgi og spila eitthvað golf með pabba og Ingólfi milla sem var að kaupa sér svaka flottar golfgræjur. Vonandi bara að Þórir hafi einhvern tíma til að vera með mér. Þetta blogg er nú orðið miklu lengra en ég ætlaði að hafa það þannig að ég segi bara bless þangað til næst. Elena 8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.07.2006 21:50:48 / elena

Ítalir komnir í úrslitaleikinn

Mínir menn komnir í úrslit, alveg frábært hjá þeim að slá þjóðverjana út. Áfram Ítalía :) Ótrúlegt að skora tvö mörk á síðustu mínutum framlengingarinnar. Vá hvað ég er stolt af mínum mönnum. Nú kannski hættir Þórir að gera grín af því að ég haldi með Ítalíu, hann segir að ég og Valtýr Björn séum einu á Íslandi sem höldum með þeim :D ´

Svo er það Portúgal og Frakkar sem spila á morgun og ég vona að Frakkar komist áfram, get ekki haldið með liðinu sem sló England út. En bless þangað til næst. Elena


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.06.2006 18:13:18 / elena

Hef það svakalega gott á paradísareyjunni

Frá því ég fór í sumarfrí er ég búin að fara til eyja, fara aftur í bæinn í útskrift hjá Beggu tengdó og er svo aftur komin á paradísareyjuna. Ég hef það alveg svakalega gott hérna, fer í sund nær daglega, horfi á HM og er svo að vinna eitthvað smá hjá pabba. Ég verð í eyjum fram á næsta föstudag en þá fer ég í bæinn og svo í brúðkaup til Tómas Inga og Helgu á laugardaginn 8. júlí. Brúðkaupið verður haldið á Flúðum og verðum án efa svaka stuð þar.

En það voru svakalegur leikur áðan á HM, Þjóðverjar unnu Argentínumenn í vítaspyrnukeppni, þannig að eitt besta liðið í keppninni er bara dottið út. Mínir menn eru að fara að spila í kvöld (Ítalía) á móti Úkraínu og ætla ég ekki að missa af honum. Jæja þá segi ég bless í bili. Elena 8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.06.2006 22:03:34 / elena

Kominn tími á eitt blogg

Það er nú meiri letin alltaf í manni, hef ekki nennt að blogga í heillangan tíma. En allavega er skólinn hjá krökkunum búinn, það voru skólaslit í dag hjá 8. og 9. bekk og svo í kvöld hjá 10. bekk. Það eru margir snillingarnir sem maður á eftir að sakna sem eru bara útskrifaðir úr Garðaskóla.

En eins og sést á athugasemdunum í síðasta bloggi þá er kríli á leiðinni hjá okkur Þóri og hlakkar okkur alveg óskaplega mikið til. Við erum bara alveg í skýjunum. Ég er sem sagt komin 14 vikur og er sett 5. desember. Það er nú ekkert farið að sjást á mér að viti, bara sama bumban sem var áður en ég varð ófrísk :)

Það eru tveir dagar eftir í skólanum, starfsdagar, og svo er ég komin í sumarfrí. Um leið og ég fer í sumarfrí ætla ég að klára að mála gluggana sem ég er búin að vera gera í margar vikur og klára svo þessi gardínukaup sem við erum einmitt búin að ætla að kaupa í meira en ár. En hef ekkert meira að segja í bili. Elena 8)


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.05.2006 13:30:52 / elena

Kosningadagur

Það er bara kosningardagur og ég er ekki enn búin að gera upp við mig hvað ég ætla að kjósa. Allavega þá fer ég og Þórir saman um miðjan dag og ég ákveð mig örugglega ekkert fyrr en bara í kjörklefanum. Svo er það brúðkaup og "ríjúníon" hjá hárgreiðslustelpunum í kvöld, alveg brjálað að gera. Þórir er enn í vinnuni og ég er bara að bíða eftir að hann komi heim með sóma langloku handa mér, nammi namm. En hef ekkert meira að segja í bili. Elena 8)


» 8 hafa sagt sína skoðun

26.05.2006 09:09:19 / elena

Ble ble

Það ætlar ekki af mér að ganga, er komin með kvef og leiðindi. Ég hef örugglega smitast af Helgu Sigrúnu þegar ég fór í heimsókn til hennar á þriðjudag, en það er bara að ná þessu úr sér með nefúða, hálsbrjóstsykrum og fleiru. En það er nú lítið búið að gerast síðstu daga hjá mér eða frá því ég bloggaði síðast nema ég fór til eyja síðustu helgi til að klára bókhaldið 2005. Það var mjög ljúft að skila því og get ég þá haldið áfram með bókhaldið 2006 án þess að vera að hugsa um 2005 bókhaldið líka, mjög ljúft. Það styttist og styttist í sumarfríið og alveg á hreinu að það fyrsta sem maður gerið í sumarfríinu er að klára að mála gluggana, erum búin að vera allt of lengi að mála þá.

Á morgun er ég og Þórir að fara í brúðkaup til Björgvins Inga og Evu og svo eftir það er ég að fara að hitta stelpurnar sem voru með mér í bekk í hárgreiðslunni í Iðnskólanum, það eru 10 ár síðan hittumst og aldeilis kominn tími á að hittast. Jæja þá hef ég ekkert meira að segja. Kveðja Elena 8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.05.2006 13:37:17 / elena

Búin að vera veik heima í gær og í dag en er samt ekkert veik

Já þessi sýking eða vírus eða hvað þetta nú var sem ég fékk á fimmtudag í síðustu viku er held ég bara loksins að fara. Fáránlegt að geta ekki mætt í vinnu útaf því það er ekki sjón að sjá mann, ég er í sjálfu sér ekkert veik bara með einhverja sýkingu sem gerir mig frekar ljóta ef ég segi nú bara rétt frá. Ég allavega mæti í vinnunna á morgun JIBBÝ :D Ömurlegt að hanga svona heima. Ég er nú samt búin að taka fullt til og þrífa, ekki bara að hanga og gera ekki neitt.

Það var glæsilegt hjá ÍBV (karlaliðinu, kemur ekkert annað til greina) á sunnudaginn að vinna Keflavík út í eyjum. Til hamingju strákar, þið verðið bara að halda svona áfram. En kvennaboltinn er að byrja í kvöld og það er svaka leikur í fyrstu umferð KR-Breiðablik. Já svakalega vona ég að KR vinni Breiðablik, ég vona nú samt að öll lið vinni Breiðablik þannig að málið er ekki að ég held með KR-ingum í sumar. Ég veit eiginlega ekkert með hverjum ég held í þessum kvennabolta þar sem það er ekkert ÍBV lið. Eitt er víst og það er að ég held ekki með Breiðablik. Ekki bjóst ég við því að hafa svona mikla andstyggð á Breiðablik, ég held frekar með Val en Breiðablik og hélt ég nú að það myndi aldrei gerast. Jæja segi þetta gott í bili. Elena 8)


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12